Utanríkisráðherra Frakkklands segir að tími Íraka sé senn á þrotum

Dominique de Villepin, utanríkisráðherra Frakklands, á fundi öryggisráðsins.
Dominique de Villepin, utanríkisráðherra Frakklands, á fundi öryggisráðsins. AP

Dominique de Villepin, utanríkisráðherra Frakklands, hvatti í dag Íraka til þess að svara ásökunum um að þeir hefðu yfir að ráða kjarnavopnum. Villepin segir að sá tími sem ráðamenn í Írak hefðu, til þess að sýna vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna samvinnu, væri senn á þrotum. "Við höfum beðið Saddam Hussein að svara kröfum alþjóðasamfélagsins," sagði ráðherrann við Europe-1 útvarpsstöðina þegar hann snéri aftur til Frakklands eftir að hafa hlýtt á Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi öryggisráðs SÞ.

Á fundinum, sem fram fór í gær, lagði Powell meðal annars fram gögn sem hann sagði að sýndu að Írakar hefðu hindrað störf eftirlitsmanna. "Við bíðum eftir því hvað Írakar hafa að segja um ásakanir um að þeir hafi yfir að ráða efna- og lífefnavopnum," segir Villepin, en ráðherrann bendir á að afstaða Frakka til mögulegra aðgerða í Írak sé óbreytt. Hann segir að hernaðaraðgerðir séu síðasta úrræðið í deilunni um Írak. Villepin lagði jafnframt áherslu á að Írakar samþykktu og létu undan kröfum alþjóðasamfélagsins með því að heimila viðtöl við íraska vísindamenn án milligöngu ráðamanna þar í landi. Þá yrðu Írakar að heimila flug U-2 njósnavélar yfir Írak, en slíkt flug væri hluti af vopnaeftirliti SÞ.

Powell lagði fram á fundinum í gær gervihnattamyndir, hljóðrituð símtöl og önnur gögn sem eiga að styðja málstað Bandaríkjamanna gegn Írak. Jean-Francois Bureau, talsmaður varnarmálaráðherra Frakklands, sagði í dag að franska leyniþjónustan hefði staðfest hluta af því sem Powell hélt fram á fundinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert