Víktor Jústsjenkó, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, hefur undanfarna mánuði þjáðst af einhverjum ókennilegum veikindum, sem hafa markað hann mjög og raunar gerbreytt útliti hans á skömmum tíma.
Sjálfur telur hann, að úkraínsk yfirvöld hafi eitrað fyrir honum en læknar jafnt utanlands sem innan hafa enn enga skýringu fundið á sjúkleikanum.
Fyrir aðeins nokkrum mánuðum minnti Jústsjenkó mest á kvikmyndastjörnu, svo myndarlegur þótti hann, en nú er andlit hans alsett bólum og á því einhver grænn fölvi. Hann er í senn tekinn og bólginn og vinstri helmingur andlitsins hálflamaður. Renna oft tár úr vinstra auga án þess hann fái við það ráðið.
Frá því í september hefur Jústsjenkó tvisvar verið til rannsóknar á Rudolfinerhaus-einkasjúkrahúsinu í Vín í Austurríki en læknar þar segjast hvorki geta sannað né afsannað, að hann hafi orðið fyrir eitrun. Hitt er aftur vitað, að þeir hafa farið fram á aðstoð erlendra sérfræðinga við að kanna hvort sjúkdómseinkennin megi rekja til eiturs, sem notað er í lífefnavopnum. Dr. Mark K. Siegel, aðstoðarprófessor við læknadeild New York-háskóla, sem hefur kynnt sér þetta mál, segir það vera hið furðulegasta. Útilokar hann til dæmis, að um matareitrun sé að ræða enda bendi einkennin til annars auk þess sem slíkur sjúkleiki gangi yfir á skemmri tíma. Læknar Jústsjenkós í Úkraínu eru sammála um það og segja, að "einhver efni, önnur en matvæli" valdi veikindunum.
John Henry, eiturefnafræðingur við Imperial College og Lundúnaháskóla, segir, að myndir af Jústsjenkó bendi til, að hann hafi orðið fyrir einhvers konar eitrun.
"Það er í raun ekki um margar skýringar að ræða. Maður á miðjum aldri verður ekki svona skelfilega útsteyptur í bólum bara upp úr þurru," sagði Henry.
Vín. AP.