Terri Schiavo ekki tengd við slöngu aftur

Móðir Schiavo, Mary Schindler.
Móðir Schiavo, Mary Schindler. AP

Dómari í Flórída hefur komist að þeirri niðurstöðu að næringarslanga verði ekki tengd aftur við Terri Schiavo, heildaskaddaða konu sem hefur verið haldið á lífi í 15 ár. Þetta var hinsta von foreldra Schiavo, sem gáfu út þá yfirlýsingu fyrr í dag að þau myndu ekki áfrýja málinu.

Slangan var tekin úr sambandi þann 18. mars sl. að ósk eiginmanns Schiavo. Málið hefur verið til meðferðar hjá dómstólum síðan þá en niðurstaða dómarans í dag er að öllum líkindum endanleg, í ljósi yfirlýsingar foreldra Schiavo, þeirra Bob og Mary Schindler, um að áfrýja málinu ekki. Hæstiréttur Bandaríkjanna hafði hafnað því að taka málið upp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert