Blair segir þá sem bera ábyrgð á árásunum verða látna svara til saka

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í ávarpi sem hann flutti nú fyrir stundu að þeir sem bera ábyrgð á hryðjuverkunum í London í morgun verði látnir svara til saka. „Við munum að sjálfsögðu setja af stað gríðarlega umfangsmiklar lögregluaðgerðir til að tryggja að þeir sem bera ábyrgð á árásunum verði látnir svara til saka,“ sagði Blair í sjónvarpsávarpi nú á fimmta tímanum. Forsætisráðherrann vottaði fjölskyldum hinna látnu og slösuðu einnig samúð sína og lofaði störf þeirra sem starfa að björgunaraðgerðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert