Meintur hryðjuverkamaður handtekinn í Pakistan

Öryggissveitir í Pakistan tilkynntu fyrir stundu að maður með breskt vegabréf hafi verið handtekinn í borginni Lahore fyrr í vikunni vegna gruns um aðild að hryðjuverkunum í Lundúnum fyrir hálfum mánuði. Maðurinn, sem heitir Haroon Rashid Aswad og var eftirlýstur vegna tengsla við málið, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á meðan á rannsókn stendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert