Áframhaldandi lögregluaðgerðir í Lundúnum

Lögreglumenn standa vörð við Stockwell brautarstöðina þar sem maður var …
Lögreglumenn standa vörð við Stockwell brautarstöðina þar sem maður var skotinn til bana í morgun. AP

Lögregla hefur girt af svæði á Harrow Road í vesturhluta London og samkvæmt fréttum BBC er hún að gera húsleit í húsi við götuna. Fréttamaður Sky-sjónvarpsstöðvarinnar segir að fyrir stundu hafi lögregla hlaupið um götuna og skipað fólki að fara inn í húsin sín. Um tíu mínútum síðan hafi hann séð það sem honum virtist vera einhvers konar sjálfstýrt sprengjuleitarfarartæki fara um götuna.

Fram kom í fréttum Sky, að tvær konur og drengur hefðu verið handtekin á svæðinu. Svo virtist sem aðgerðir lögreglu beindust einkum að veitingahúsi eða netkaffihúsi.

Þá segir fréttamaður BBC að samkvæmt óstaðfestum fréttum frá lögreglumönnum hafi maðurinn sem skotinn var til bana við á Stockwell-brautarstöðinni í morgun verið maðurinn sem leitað var vegna tilræðis á Oval lestarstöðinni í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert