Húsleit á Harrow Road tengist tilræðunum í gær

Lögreglumaður stendur vörð við Netkaffihúsið.
Lögreglumaður stendur vörð við Netkaffihúsið. Reuters.

Húsleit á Harrow Road ein af nokkrum aðgerðum sem tengjast sprengjutilræðunum í gær, að sögn lögreglu. Aðgerð lögreglu virðist einkum beinast að netkaffihúsi. Vitni segir að það hafi heyrt skothvelli, að því er fram kemur í frétt BBC.

Þá segir fréttamaður BBC að samkvæmt óstaðfestum fréttum frá lögreglumönnum hafi maðurinn sem skotinn var til bana við á Stockwell-brautarstöðinni í morgun verið maðurinn sem leitað var vegna tilræðis á Oval lestarstöðinni í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert