Reynt að kveikja í húsi eins tilræðismannsins

Breska lögreglan sagði í dag að hún væri að rannsaka tilraun sem virðist hafa verið gerð til að kveika í húsi eins mannsins sem talinn er hafa gert sprengjuárásirnar í London 7. júlí.

Lögregla sagðist hafa farið til heimilis Jermaine Lindsay í Aylesbury eftir að henni bárust tilkynningar um megna bensínlykt í götunni.

Lyndsay er talinn hafa gert sprengjuárás í lest á milli Russell Square og King´s Cross lestarstöðvanna 7. júlí en 25 létust í árásinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert