Ísrael ætlar að draga allt herlið sitt frá Líbanon fyrir 22. september

Ísraelsstjórn segir að allt herlið Ísraels verði farið frá Líbanon …
Ísraelsstjórn segir að allt herlið Ísraels verði farið frá Líbanon fyrir 22. september. AP

Ísrael ætlar að draga allt herlið sitt frá Líbanon fyrir 22. september, en þá hefst nýtt ár hjá gyðingum. Þetta er í samræmi við ályktun Sameinuðu þjóðanna númer 1701. Ísraelska ríkissjónvarpið greindi frá þessu í dag.

Líbanskar öryggissveitir sögðu fyrr í dag að ísraelskir hermenn væru að hverfa frá þremur svæðum í Suður-Líbanon líkt og kveðið væri á um í vopnahléssamningi Ísraels og Hizbollah, þar sem SÞ miðlaði málum.

Ísraelsmenn eiga því aðeins eftir að draga herlið sitt frá þremur svæðum til viðbótar í Líbanon.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert