Forseti Íraks, Jalal Talabani, segir að hann sjái ekki fyrir sér að her bandamanna yfirgefi landið fyrr en eftir tvö til þrjú ár. Í síðustu viku greindi George Casey hershöfðingi, æðsti yfirmaður bandaríska heraflans í Írak, frá því að her Íraka gæti tekið yfir öryggismál landsins eftir 12-18 mánuði.
Talabani sagði á ráðstefnu í París í morgun að hann teldi að Írakar þurfi meiri tíma áður en þeir geti tekið yfir öryggismál landsins, kannski ekki þrjátíu ár en einhver ár.
„Ég tel persónulega að við þurfum tvö til þrjú ár til þess að byggja upp varnir landsins þannig að við getum kvatt vini okkar og þakkað þeim fyrir þeirra starf," sagði Talabani.
Talabani aftók á ráðstefnunni að það væri borgarastríð í Írak heldur væru öfgahópar sem héldu blóðbaðinu uppi í landinu. Lýðræðið í Írak eigi undir högg að sækja vegna árása minnihlutahópa.
Forseti Íraks er í þriggja daga opinberri heimsókn í Frakklandi og mun hitta Jacques Chirac, forseta Frakklands, síðar í dag.