1.600 breskir hermenn kallaðir heim frá Írak

Forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, greindi frá því í dag að breskum hermönnum yrði fækkað um 1.600 í Írak á næstu mánuðum. Í dag eru 7.100 breskir hermenn í suðurhluta Íraks en þeim mun fækka í 5.500 á næstunni að sögn Blairs. Stefnt er að því að þeir verði færri en fimm þúsund í lok árs.

Hann bætti því við að breskir hermenn verði áfram í Írak eins lengi og þörf er á.

Breskir hermenn í Basra í Írak
Breskir hermenn í Basra í Írak Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert