Nafn eins fórnarlambsins birt

Birt hefur verið nafn eins þeirra, sem létu lífið í skotárás í Virginia Tech háskólanum í Bandaríkjunum í gær. Hann hét Ryan Clark og var á lokaári í háskólanum. Alls skaut maður 32 til bana í skólanum áður en hann svipti sig lífi.

Þá er G.V. Loganathan, 51 árs verkfræðiprófessor, sagður vera meðal hinna látnu. Ættingjar hans á Indlandi skýrðu frá þessu í morgun. Einnig er indversks námsmanns saknað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert