Aukin nýliðun í þorskstofninum í Norðursjó

Reuters

Nýliðun þorsks hefur aukist í Norðursjó, annað árið í röð. Þetta er niðurstaða nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar á ástandi þorsstofnsins í Norðursjó. Hins vegar er mælt með því að áfram verði þorskveiðar á svæðinu háðar takmörkunum á næsta ári.

Þorskstofninn í Norðursjó minnkaði umtalsvert á tveimur síðustu áratugum vegna ofveiði, samkvæmt skýrslu International Council for the Exploration of the Sea, eða ICES, en vonir standa til þess að hann eigi eftir að ná fyrri stærð á ný, samkvæmt skýrslunni sem verður gerð opinber á föstudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert