Setti myndskeið af ráni á netið

Úr myndskeiðinu sem náðist á eftirlitsmyndavélar í skartgripabúðinni.
Úr myndskeiðinu sem náðist á eftirlitsmyndavélar í skartgripabúðinni.

Eigandi skartgripabúðar í Árósum í Danmörku hefur sett myndskeið á vefinn YouTube sem sýnir þegar grímuklæddur maður ruddist inn í verslunina sl. föstudag og réðist á þrjár konur, sem þar starfa, þar á meðal eiginkonu og mágkonu verslunareigandans.

Ræninginn hafði síðan á brott með sér skartgripi og muni, sem verðlagðir eru á allt að 14 milljónir króna.

Kaupmaðurinn heitir einnig hverjum þeim, sem getur borið kennsl á ræningjann, jafnvirði 340 þúsund króna að launum.

„Ég held að einhver í Árósum þekki hann. Mér líkar ekki, að starfsfólk mitt sé rænt og kona mín slegin," segir Preben Randløv við  blaðið Århus Stiftstidende. 

Myndskeiðið

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert