Danski drengurinn fundinn

Oliver litli, sem rænt var í Virum í gær.
Oliver litli, sem rænt var í Virum í gær.

Lögregla í Danmörku fann í dag Oliver Chaanhing, 5 ára gamlan danskan dreng sem rænt var í Virum í gær. Lögreglan réðist til inngöngu í hús í Hvidovre nú síðdegis þar sem drengnum var haldið. Tveir menn voru handteknir en ræningjarnir höfðu krafist lausnargjalds, að sögn lögreglu. 

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni, sem danskir fjölmiðlar vitna til, að reiknað sé með að fleiri verði handteknir vergna málsins. Mennirnir tveir, sem handteknir voru í gær, verða leiddir fyrir dómara í Helsingaeyri á morgun þar sem gæsluvarðhalds verður krafist.

Uffe Stormly, talsmaður lögreglunnar á Norður-Sjálandi, sagði við fjölmiðla að mennirnir, sem voru handteknir, séu af kínverskum uppruna eins og Oliver.

Stormly vildi ekki upplýsa nánar um rannsókn málsins, sem hann sagði vera mjög umfangsmikla. Hann sagði að drengurinn væri við góða heilsu og væri á leið til foreldra sinna.

Foreldrar Olivers eiga og reka nokkur veitingahús á Sjálandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert