Hótaði börnum sínum dauða í kjallaranum

Josef Fritzl.
Josef Fritzl. AP

Austurríkismaðurinn Josef Fritzl, sem hélt dóttur sinni fanginni og beitti hana kynferðislegu ofbeldi í 24 ár, segist hafa lokað hana inni þar sem hann hafi viljað vernda hana. Lögregla hefur nú greint frá því að Fritzl hafi áður verið dæmdur fyrir kynferðislegt ofbeldi. Þetta kemur fram á fréttavef Berlingske Tidende.

Samkvæmt heimildum Welt Online hafði dóttirin Elisabeth reynt að hlaupast að heiman áður en Fritzl, sem nú er 73 ára, lokkaði hana niður í kjallarann. Hún var þá átján ára en segir föður sinn hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi frá því hún var ellefu ára.

„Josef hefur greint frá því að dóttir hans hafi tvisvar hlaupist að heiman og að hann hafi óttast að hún lenti í slagtogi með fíkniefnaneytendum,” segir Gerhard Sedlack, talmaður saksóknaraembættisins í St. Pölten. Þá hefur verið greint frá því að þrjú af sjö börnum sem Elisabeth fæddi föður sínum, hafi horft upp á hann nauðga henni hvað eftir annað í kjallaranum. Einnig er hann sagður hafa sagt dóttur sinni og börnum hennar að þau myndu deyja í kjallaranum kæmi eittthvað fyrir hann þar sem hann einn vissi aðgangsorðið að kjallaradyrunum.

Ekki liggur fyrir hvort Fritzl hafi einnig beitt eitthvert af börnum Elisabethar kynferðislegu ofbeldi en þrjú þeirra ólust upp hjá honum og eiginkonu hans Rosemarie en þrjú í kjallaranum. Sjöunda barnið lést skömmu eftir fæðingu.

Sú spurning hefur einnig verið áleitin í umræðum um málið í Austurríki hvort mögulegt sé að eiginkona Fritzl og móðir Elisabethar hafi ekki vitað af því að dóttir hennar og þrjú barnabörn hafi búið í kjallaranum. Fritzl hafi fært þeim fæði og klæði og unnið að því árum saman að stækka kjallarann.

Rosemarie, dóttir hennar og barnabörn eru nú öll til meðferðar hjá teymi geðlækna og sálfræðinga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert