Hjálparstarfið tekur nokkur ár

Viðbrögð við neyðarbeiðnum Alþjóða Rauða krossins í kjölfar hamfaranna í Búrma og Kína á liðnum vikum hafa verið mikil samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum á Íslandi. Telur Rauði krossinn að hjálparstarfið muni taka nokkur ár, bæði í Búrma og Kína.

Rauði krossinn væntir þess að neyðarverkefni og uppbyggingarstarf samtakanna í þessum löndum verði að fullu fjármögnuð fyrir framlög landsfélaga Rauða krossins, ríkisstjórna og almennings.

Alþjóða Rauði krossinn sendi út endurskoðaða neyðarbeiðni fyrir Búrma sem hljóðar upp á 3,7 milljarða íslenskra króna til að aðstoða 100.000 fjölskyldur (um 500.000 manns) í þrjú ár.  Fyrstu vikur og mánuði er lögð áhersla á að veita nauðstöddum brýna neyðaraðstoð, verja þá gegn útbreiðslu ýmissa sjúkdóma og að koma yfir þá skjólshúsi.  Síðan tekur við uppbygging á hamfarasvæðinu.

Loftbrú með hjálpargögn Rauða krossins milli Búrma og Kuala Lumpur í Malasíu var komið á viku eftir að fellibylurinn Nargis reið yfir landið, og hafa um 27.000 sjálfboðaliðar Rauða krossins í Búrma þegar dreift um 500 tonnum af neyðargögnum.  Það hefur reynst erfitt að komast til afskekktra byggða, en Rauði krossinn vinnur að því að ná til allra skjólstæðinga sinna á næstu dögum.

Um fimm milljón manns misstu heimili sín í jarðskjálftunum  í Sichuanhéraði í Kína.  Alþjóða Rauði krossinn mun á næstu vikum dreifa um 100.000 tjöldum á skjálftasvæðunum þar sem þörfin fyrir neyðarskýli er gríðarleg.  Rauði krossinn mun að öllum líkindum einnig aðstoða við byggingu bráðabirgðahúsnæðis fyrir fjölskyldur þar til uppbygging á hamfarasvæðunum getur átt sér stað.

„Rauði krossinn í Kína hefur unnið þrekvirki á undanförnum þremur vikum.  Rúmlega 35.000 sjálfboðaliðar og starfsmenn hafa tekið þátt í björgun og neyðaraðstoð, svo sem skyndihjálp og heilsugæslu, dreifingu á tjöldum, matvælum, vatni og fatnaði auk þess að veita fórnarlamba jarðskjálftanna sálrænan stuðning.

Alþjóða Rauði krossinn vinnur nú að því að endurskoða neyðarbeiðni sína sem hljóðaði upp á 1.5 milljarða íslenskra króna, til aðstoðar um 100.000 manns í eitt ár.  Aðstæður á jarðskjálftasvæðunum breytast stöðugt vegna eftirskjálfta og hættunnar á að stíflur bresti og valdi enn meira tjóni," samkvæmt tilkynningu.

Rauði kross Íslands sendi strax 10 milljónir íslenskra króna til neyðaraðstoðarinnar í Búrma.  Þá veitti utanríkisráðuneytið einnig um 7,5 milljón króna framlag í neyðaraðstoð.

Rauði krossinn í Kína hefur safnað um 37 milljörðum króna sem notaðar verða í uppbyggingu á hamfarasvæðunum.  Ríkisstjórn Íslands veitti um 7.5 milljónum króna til Rauða kross Íslands vegna hjálparstarfsins í Kína.  Þór Daníelsson, sendifulltrúi Rauða kross Íslands og yfirmaður landsskrifstofu Alþjóða Rauða krossins í Mongólíu, var kallaður til að aðstoða við neyðaraðgerðirnar í Kína, en hann hefur nú snúið aftur til skyldustarfa sinna.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert