Etum, drekkum og verum glöð

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Grannur og spengilegur líkami, rétt
næring og mikil hreyfing eru mál
málanna nú á dögum og af fáu hafa
menn jafnmiklar áhyggjur og offitu-
vandanum. Það er því ekki undarlegt
þótt næringar- og megrunariðnaður-
inn sé mikill að vöxtum og um þessi
mál koma út þúsundir bóka á ári
hverju. Fyrir skömmu bættist við
enn ein, eftir bandaríska næringar-
fræðinginn Esther Blum, og hún
rýkur út eins og heitar lummur. Boð-
skapur hennar er þessi: Etum feit-
meti, drekkum áfengi (en þó í hófi)
og látum okkur líða vel.

„Þessi feitmetislausa veröld, sem
við höfum byggt upp í kringum okk-
ur, hefur leikið konurnar grátt. Af-
leiðingarnar eru þær, að hormóna-
starfsemi þeirra er öll farin úr
skorðum," segir Blum um bókina
sína, „Leyndarmál matarástarinnar:
Hundrað aðferðir við að láta okkur
líða vel".

Blum segir, að fitulaust fæði hafi
skelfileg áhrif á kynferðislífið. „Kon-
ur hafa fjarlægt fituna úr matnum og
eru svo hissa á því, að löngun þeirra
til ásta er líka horfin," segir Blum,
sem er nú orðin svo vinsæl, að það
líður varla dagur án þess, að rætt sé
við hana í sjónvarpi eða mynd af
henni prýði forsíðu einhvers kvenna-
tímarits.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert