Höfuðlaust lík gjöf til Obama

Herskáir talíbanar afhöfðuðu afganskan mann eftir að hafa ásakað hann um njósnir fyrir Bandaríkin. Líkið var skilið eftir við vegkant og á því var miði þar sem stóð: „Hver sá sem njósnar fyrir Bandaríkin mun hljóta sömu örlög. Þetta er gjöf til Obama“.

Hinum 35 ára gamla Shafiq Gul var rænt fyrir viku og fannst lík hans í dag í Razmak, við Waziristan hérað í norðvesturhluta Pakistan.

Íslamskir skæruliðar ræna reglulega og drepa Afgani vegna gruns um að þeir séu að njósna fyrir pakistönsku eða bandarísku ríkisstjórnina sem berjast gegn Talíbönum við landamæri Afganistan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert