Dauðsfall í Bandaríkjunum vegna flensu

Bandarískur embættismaður staðfesti í morgun, að tæplega tveggja ára gamalt barn hefði látist af völdum svínaflensu í Texas. Er þetta fyrsta dauðsfallið af völdum sjúkdómsins, sem verður utan Mexíkó.

Ekki fengust nánari upplýsingar um málið, að sögn Reutersfréttastofunnar. 65 sjúkdómstilfelli hafa verið staðfest í Bandaríkjunum en í fæstum tilfellum hefur fólk orðið alvarlega veikt.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert