Gæti haft mjög slæm áhrif í Afríku

Fólk með grímur til varnar svínaflensu í Mexíkó.
Fólk með grímur til varnar svínaflensu í Mexíkó. TOMAS BRAVO

Veirurnar HIV og H1N1 (svínaflensa) gætu verið stórhættuleg blanda, samkvæmt því sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) greinir frá. Fólk með HIV er í miklum áhættuhóp þegar kemur að svínaflensunni, líkt og árstíðabundinni flensu yfirleitt, og ættu að hafa forgang þegar kemur að dreifingu bóluefna og veirulyfja.

Helst er litið til Afríkuríkja þar sem hlutfall alnæmis er hátt. WHO segir að tryggja verði að fólk þar fái lyf fljótt og örugglega, enda fari svo að svínaflensan breiðist þar út gæti það haft í för með sér hörmulegar afleiðingar.

Svínaflensa hefur ekki verið greind í Afríku enn sem komið er.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert