Fimm afhöfðaðir í Sádí-Arabíu

Fimm karlmenn sem dæmdir voru til dauða, m.a. fyrir þjófnað, barnarán, nauðgun og áfengis- og fíkniefnabrot voru í dag líflátnir í borginni Medina í Sádí-Arabíu. Líkt og venja er voru mennirnir afhöfðaðir.

Fjórir mannanna eru frá Sádí-Arabíu og einn frá Chad. Þeir voru allir dæmdir fyrir að ræna börnum og nauðga þeim. Þar að auki neyttu þeir áfengis og vímuefna.

Á þessu ári hafa 34 verið líflátnir í landinu en þeir voru 102 á síðasta ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert