7 ára stúlku rænt í Hollandi

Sjö ára gamalli stúlku var rænt í Hollandi í dag þar sem hún var að leik fyrir framan grunnskóla í bænum Ede. Víðtæk leit hefur farið fram að stúlkunni í dag.

Að sögn lögreglu sást þegar stúlkan var sett inn í gráan bíl af gerðinni Opel Zafira, greinilega gegn vilja sínum. Stúlkan hafði skömmu áður verið á leikvellinum framan við skólann. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert