Grísk stjórnvöld hafa fyrirskipað að 10 þúsund manns verði flutt á brott frá úthverfum Aþenu á svæði þar sem skógareldar loga stjórnlaust um 20 km frá miðborginni. Hefur neyðarástandi verið lýst yfir á svæðinu.
Öllum íbúum bæjarins Agios Stefanos, 23 km norður af Aþenu, 10 þúsund að tölu, hefur verið skipað að yfirgefa bæinn en eldarnir hafa nú náð íbúðahverfi.
Um 400 slökkviliðsmenn berjast við eldana, sem hafa logað frá því á föstudagskvöld. Eru notaðar 12 flugvélar og 9 þyrlur við slökkvistörfin. Von er á liðsauka frá Ítalíu, Frakklandi og Kýpur. Talið er að 12 þúsund hektarar af skóglendi hafi brunnið og einnig tugir sumarhúsa.Fyrr í morgun voru tvö stór barnasjúkrahús rýmd og einnig tjaldsvæði og hús sem eldurinn ógnaði. Íbúar hafa flúið undan eldunum í bílum, á mótorhjólum og fótgangandi en engan hefur sakað.
Eldarnir loga nú á um 40 km breiðu svæðið. Hvasst er og mikill lofthiti eða um 40°C. Þykkan reyk leggur af eldunum og gerir það slökkviliðsmönnum erfitt fyrir að berjast við þá með flugvélum.
Eldarnir eru einnig farnir að teygja sig í átt að bænum Maraþon við austurströndina. Þá segja embættismenn, að hætta sé á að eldarnir nái tveimur 2500 ára gömlum musterisrústum í Rhamnus.