Kaldasta nótt í Danmörku í 23 ár

Ekki hefur verið kaldara í Danmörku  í 23 ár en í nótt en frostið komst niður í 15,9 stig í Thy og Karup á Jótlandi.

Kuldametið í Danmörku var raunar sett í Thy 11. janúar 1987 þegar frostið þar mældist 17,1 stig.

Áfram er spáð frosthörkum í Danmörku í dag og einnig er spáð talsverðum vindi þannig að kuldinn mun næða.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert