Obama til hjálpar lántakendum

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. KEVIN LAMARQUE

Þó efnahagslíf í Bandaríkjunum sé sagt á réttri leið, er fjöldi nauðungaruppboða enn vaxandi. Uppruni fjármálakreppunnar í Bandaríkjunum hefur enda verið rakinn til svokallaðra undirmálslána, þar sem húsnæðislán voru veitt fólki sem taldist ótryggir lántakendur.

Í dag lýsti Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, því yfir í Nevada, að hann myndi hjálpa fólki sem skuldaði umfram markaðsverð af húsum sínum, til að finna leið til að borga húsnæðislánin sín þannig að bæði lántakendur og lánveitendur gætu við unað. Í því skyni setti hann einn og hálfan milljarð bandaríkjadala, jafnvirði um 195 milljarða króna, í sjóð sem fjármagnar húsnæðislánastofnanir í fylkjum Kaliforníu, Flórída, Nevada, Arizona og Michigan.

Segir Obama að fjárveitingin eigi að hjálpa atvinnulausum fasteignaeigendum að komast hjá nauðungaruppboðum. Fjármagninu verður dreift á milli stofnana og getur farið til hjálpar atvinnulausum fasteignaeigendum, eða þeirra sem eiga eignir þar sem húsnæðislánið er komið yfir markaðsverðmæti. Húsnæðisverð hefur fallið um rúm 20% frá því það náði hámarki í þessum fylkjum.

Fréttastofa Reuters bendir á að það þyki hins vegar engin tilviljun að Obama hafi valið að tilkynna um fjárveitinguna í Nevada fylki sem er enn að vinna sig upp úr hruni á fasteignamarkaðinum. Er þar vísað til þess að Obama sé að launa þingmanni Demókrata, Harry Reid sem reynir að vinna upp verulega forystu Repúblikana í fylkinu en kosningar sem framundan eru í nóvember geta breytt valdahlutföllum í þinginu. Reid hefur veitt Obama liðsinni við að koma hans málefnum gegnum þingið en legið undir ámæli Repúblikana sem segja hann gleyma eigin fylki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert