Hafna lögleiðingu meydómsprófs

Stjórnvöld í Indónesíu hafna því að stúlkur fari í meydómspróf
Stjórnvöld í Indónesíu hafna því að stúlkur fari í meydómspróf Reuters

Stjórnvöld í Indónesíu hafa hafnað frumvarpi þingmanns um að unglingsstúlkur verði þvingaðar til að fara í rannsókn til að kanna hvort þær séu enn hreinar meyjar. Var þingmanninum bent á af ráðuneyti sem fer með málefni kvenna að slíkt próf bryti gegn mannréttindum og gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir heilsu ungra stúlkna.

Ráðuneytisstjórinn, Wahyu Hartomo, segir í samtali við AFP fréttastofuna að það geti haft alvarlegar sálrænar afleiðingar fyrir ungar stúlkur að vera þvingaðar í slík próf. Meira um vert sé að veita ungu fólki meiri og betri fræðslu heima við. Sérstaklega í ljósi þess hve slæm áhrif netið hefur á ungmenni.

Hefur þingmaðurinn, Bambang Bayu Suseno, samþykkt að falla frá frumvarpinu en honum finnst eðlilegt  að stúlkur standist slíkt próf áður en þær fá heimild til þess að leggja stund á nám í ríkisreknum framhaldsskólum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert