Erfiðir tímar en ekki heimsendir

Jon Stewart ávarpaði mannfjöldann.
Jon Stewart ávarpaði mannfjöldann. Reuters

„Við lifum á erfiðum tímum en þetta er ekki heimsendir,“ sagði gamanþáttastjórnandinn Jon Stewart á útifundi í Washington. Gríðarlegur fjöldi fólks mætti á fundinn, en hann taldi sjálfur að á milli 10 milljónir til 6 milljarðar manna hefðu verið á fundinum.

Bandaríkjamenn ganga til kosninga á þriðjudaginn. Almennt er búist við að demókrataflokkur Obama forseta tapi fylgi í kosningunum. Svokölluð Teboðshreyfing hefur sett svip á kosningabaráttuna en hún hefur notað stór orð um Obama og stefnu hans.

Þetta varð m.a til þess að Jon Stewart boðaði til fundar til að koma þeim boðskap á framfæri að heimurinn væri ekki að farast og ekki væri ástæða til að ráðast á pólitíska andstæðing með þeim ofsa sem sumir hefðu gerst sekir um. Sjónvarpsþáttagerðamaðurinn Stephen Colbert stendur einnig að fundinum með skilaboð um að endurvekja geðheilbrigði landsmanna og/eða ótta.

Þátttakan í fundinum hefur komið mörgum á óvart og velta menn nú fyrir sér hvort fundurinn hafi einhver áhrif á niðurstöðu kosninganna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert