Námamennirnir taldir af

Allir námamennir 29 sem lokuðust inni í kolanámu á Nýja Sjálandii eru taldir af, en önnur sprenging varð í námunni í nótt.

Talsmaður lögreglunnar segir að gassprengingin feli í sér að mjög ólíklegt sé að einhver hafi lifað hana af. „Við teljum að enginn hafi komist af,“ sagði hann við nýsjálenska sjónvarpsstöð.

Ekkert samband hefur náðst við mennina frá því í fyrri sprengingunni, sem átti sér stað sl. föstudag. Af námamönnunum 29 voru 24 heimamenn, tveir Ástralir, tveir Bretar og einn Suður-Afríkumaður.

Seinni sprengingin átti sér stað klukkan 14:37 að staðartíma, klukkan 1:37 eftir miðnætti í nótt að íslenskum tíma.

Harmur er kveðinn að aðstandendum námamannanna.
Harmur er kveðinn að aðstandendum námamannanna. reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert