Jólatré páfa tendrað í dag

Benedikt páfi 16. messar á Péturs
Benedikt páfi 16. messar á Péturs Reuters

Í dag voru ljós tendruð á jólatrénu á Péturstorginu í Róm.

Tréð er ættað frá smábænum Luson, sem er í Norður-Ítalíu en á hverju ári fær eitt Evrópuland þann heiður að skenkja Vatíkaninu jólatré.

Benedikt páfi 16.sagði um tréð að það stæði fyrir bræðralag, vináttu, sameiningu og frið.

Tréð er 34 metrar á hæð og kranabíl þurfti til að hægt væri að skreyta það.

Sú hefð, að skreyta jólatré á Péturstorginu, hófst árið 1982, í páfatíð Jóhannesar Páls annars.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert