Rithöfundi vísað frá Noregi

Maria Amelie.
Maria Amelie.

Norska útlendingastofnunin varð ekki við ósk um að fresta því að vísa Madinu Salamovu úr landi. Var Salamova handtekin í dag og flutt til Gardemoenflugvallar þaðan sem hún fer með flugvél til Moskvu í Rússlandi í dag. Norskur unnusti hennar er sagður með í för.  

Salamova, sem er þekkt í Noregi undir höfundarnafninu Maria Amelie, fæddist í Norður-Ossetíu í Rússlandi fyrir 25 en foreldrar hennar fluttu með hana til Noregs þegar hún var barn að aldri.  Fjölskyldan fékk hins vegar aldrei landvistarleyfi.

Amelie talar norsku og hefur lokið háskólaprófi í Noregi. Á síðasta ári gaf hún út bók um líf ólöglegra innflytjenda í Noregi og byggði  hana að nokkru leyti á eigin lífi. Í kjölfarið fór útlendingastofnunin fram á það að hún yrði handtekin.

Að sögn blaðsins Aftenposten hefur Maria Amelie ítrekað sagt að hún óttist mjög að verða send til Rússlands og taki það mjög nærri sér. Um helgina hafa bæði lögmaður hennar og læknir sagt að þeir hafi áhyggjur af heilsu hennar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert