Biður um miskunn

Anibal Cavaco Silva, forseti Portúgals.
Anibal Cavaco Silva, forseti Portúgals. Reuters

Forseti Portúgals bað Evrópusambandið (ESB) og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) að sýna landi sínu miskunn. ESB og AGS settu ströng skilyrði fyrir lánafyrirgreiðslu upp á 80 milljarða evra (13.016 milljarða ÍKR). Stutt er til kosninga í Portúgal.

Anibal Cavaco Silva forseti sagði að í ljósi væntanlegra kosninga 5. júní þurfi landið millibilsáætlun til þess að næsta ríkisstjórn geti komið að endanlegri samningagerð því hún þurfi að framkvæma aðgerðirnar.

Jose Socrates forsætisráðherra óskaði eftir aðstoðinni eftir að þingið hafnaði niðurskurðaráformum sem minnihlutastjórn hans lagði til. Það varð til þess að Socrates sagði af sér embætti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert