Fari Grikkir í greiðslufall mun Evrópa spjara sig

Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands.
Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands. Reuters

Fjármálaráðherra Þýskalands segir að aðildarríki evrusvæðins búi sig nú undir það versta í tengslum við skuldavanda Grikkja. Wolfang Schäuble segir að aðildarríkin muni spjara sig takist grískum stjórnvöldum ekki að afstýra greiðslufalli.

Þetta kemur fram í viðtali sem er birt í Bild am Sonntag í dag. 

Schäuble segir að hann hafi átt von á því, líkt og aðrir starfsbræður hans í Evrópu, að gríska þingið myndi samþykkja aðahaldsaðgerðir stjórnvalda í vikunni, þrátt fyrir mikla andstöðu og fjölmenn mótmæli heimafyrir.

Hefði atkvæðagreiðslan farið á annan veg þá hefðu önnur ríki spjarað sig.

„Við erum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir að allt fari á versta veg í Evrópu, en á sama tíma erum við búnir undir það versta,“ sagði hann.

Schäuble segir að menn hafi dregið þann lærdóm af hruninu árin 2007 og 2008, þegar bankar hrundu um allan heim í kjölfar falls bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers, að efnahagslífið á heimsvísu geti náð sér eftir áfall. 

„Fari hlutirnir á annan veg en menn hafa gert ráð fyrir þá er það að sjálfssögðu mikð áfall. Jafnvel árið 2008, þá gat heimsbyggðin gripið til aðgerða til að takast á við óútreiknanlegt neyðarástand á fjármálamörkuðum á heimsvísu með skipulögðum og samhæfðum aðgerðum,“ segir þýski fjármálaráðherrann.  

Hann viðurkennir að verg þjóðarframleiðsla í Þýskalandi, sem er stærsta hagkerfi Evrópu, hafi fallið niður í 4,7% í kjölfar ástandsins. En hún hefur ekki verið lægri frá tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hann tekur hins vegar fram að staðan hafi nú breyst til batnaðar og nýtt vaxtarskeið sé hafið.

Schäuble varaði hins vegar grísk stjórnvöld við afleiðingum þess ef þau hefðu ekki samþykkt aðhaldsaðgerðirnar. Hefði það ekki verið gert þá hefði það haft meiriháttar áhrif á stöðuleikann á evrusvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert