Harmleikur í nautaatshringnum

Tuttugu og fimm ára gamall maður er látinn og fjölmargir særðir eftir að brjálað naut hljóp fólk niður í nautaatshring í Fundacion í Kólumbíu.

Nautið náði að stinga manninn nokkrum sinnum áður en áhorfendur gátu dregið þann slasaða af vettvangi alblóðugan. Maðurinn var fluttur á nærliggjandi sjúkrahús, þar sem hann lést síðar af völdum áverkanna. Fimmtán aðrir slösuðust þegar áhorfendum var leyft að fara inn í hringinn til að takast á við nautið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert