Mótmæla höfrungaveiðum Japana

Dýraverndunarsinnar í Ástralíu og Filippseyjum krefjast þess að Japanar láti af höfrungaveiðum og dýraverndunarsamtök víða um heim halda í dag „Alþjóðlega japanska höfrungadaginn“, en höfrungaveiðitímabilið hefst í dag.

Hópur fólks safnaðist saman fyrir framan japanska sendiráðið í Sidney í Ástralíu og hvatti fólkið Japana til að hætta höfrungaveiðum.

Talsmaður hópsins segir að um grimmilegt athæfi sé að ræða sem ekkert annað þróað land ástundi.

Einnig mótmælir fólk við japanska sendiráðið í Manila á Filippseyjum og krefst þess að ríkisstjórnin setji viðskiptabann á höfrungaafurðir frá Japan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert