Vilja að Palestínumenn hætti við fulla aðild að SÞ

Catherine Ashton, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins.
Catherine Ashton, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins. Reuters

Evrópusambandið vonast til þess að geta sannfært forystumenn Palestínumanna um að hætta við beiðni sína um að fá fulla aðild að Sameinuðu þjóðunum síðar í þessum mánuði í staðinn fyrir að áheyrnaraðild þeirra fái meira vægi, samkvæmt frétt írska dagblaðsins Irish Times í dag.

Bæði ESB og Bandaríkin óttast að ósk Palestínumanna muni draga úr möguleikunum á að hægt verði að koma á nýjum friðarviðræðum á milli þeirra og stjórnvalda í Ísrael. Þá bera ísraelskir ráðamenn að ef af slíku yrði myndi það útiloka allar viðræður.

Utanríkismálastjóri ESB, Catherine Ashton, hefur lagt til áðurnefnda málamiðlunartillögu en þó þannig að ekki sé lokað á möguleikann á fullri aðild að Sameinuðu þjóðunum í framtíðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert