Kaupa gögn um skattsvikara

Þýsk stjórnvöld keyptu disk með gögnum um meinta skattsvikara sem eru grunaðir um að hafa stungið undan skatti með því að koma fjármunum fyrir í skattaskjóli banka í Lúxemborg.

Upplýsingunum á disknum verður dreift til sambandsstjórna Þýskalands, segir talsmaður þýska fjármálaráðuneytisins sem segir aðgerðir stjórnvalda löglegar.

Financial Times í Þýskalandi greinir frá því í dag að greiddar hafi verið 3 milljónir evra fyrir upplýsingarnar. Samkvæmt frétt FT má gera ráð fyrir að rannsókn málsins hefjist í næsta mánuði.

Skattayfirvöld í Þýskalandi náðu að endurheimta um 1,6 milljarða evra árið 2009 frá skattsvikurum sem komu fjármunum sínum fyrir á leynireikningum í Liechtenstein og Sviss en þá keyptu þýsk yfirvöld upplýsingar sem stolið hafði verið frá bönkunum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert