Átta menn sem taldir eru vera meðlimir í hryðjuverkasamtökunum Al-Qaeda voru drepnir í loftárás Bandaríkjamanna í Jemen í dag. Árásin var gerð með ómannaðri, fjarstýrðri flugvél og var loftskeyti skotið á bifreið mannanna í Shabwa-héraði.
Al-Qaeda-samtökin eru talin einna virkust í Jemen. Ásamt því að gera árás á mennina átta var njósnavélum Bandaríkjamanna flogið um fleiri svæði í Jemen.