Fjórir fullorðnir og þrjú börn létu lífið eftir að bílstjóri bifreiðar missti stjórn á henni í New York í dag og hún steyptist fram af upphækkaðri hraðbraut og féll niður í það minnsta 15 metra að sögn lögreglu.
Ekki liggur fyrir hvað varð þess valdandi að bílstjórinn missti stjórn á bifreiðinni samkvæmt fréttavef CBS-sjónvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum en bifreiðin kom niður á skógivöxnu svæði í dýragarðinum í Bronx og stóð upp á endann þegar komið var að henni. Allir þeir sem voru í bifreiðinni létu lífið.
Fram kemur í fréttinni að hinir látnu hefðu verið 84 ára gamall karlmaður, þrjár konur á aldrinum 80 ára, 45 ára og 30 ára og þrjár ungar stúlkur á aldrinum 12, 10 og 7 ára. Engum varð hins vegar meint af í dýragarðinum, hvorki starfsmeönnum, gestum né dýrum.