Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Reuters

Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Þetta kemur fram á fréttavef Reuters-fréttaveitunnar í dag og er þar vitnað í þrjá ónafngreinda embættismenn sambandsins.

Fram kemur í fréttinni að samþykkt hafi verið á símafundi sérfræðingateymis sem starfi fyrir fjármálaráðherra evruríkjanna að leggja þessar ráðleggingar fram en áður hafði seðlabanki Þýskalands lýst þeirri skoðun sinni að það yrði þolraun ef Grikkir yfirgæfu evrusvæðið en það væri viðráðanlegt.

Leiðtogar Evrópusambandsins hafa undanfarið ítrekað lýst því yfir að allt verði gert til þess að tryggja að Grikkland verði áfram á evrusvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert