Bretar þrýsta á Rússa og Írana

William Hague, utanríkisráðherra Bretlands.
William Hague, utanríkisráðherra Bretlands. AFP

William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, hvatti í dag Rússa og Írana til að beita áhrifum sínum í Sýrlandi til að binda friðsælan enda á átökin, sem staðið hafa þar yfir undanfarna 15 mánuði. 

Hague hitti starfsbræður sína, þá Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Ali Akbar Salehi, utanríkisráðherra Írans, á fundi í Kabúl í Afganistan í dag. Þar lagði Hague áherslu á að þeim friðaráætlunum, sem lagðar hafa verið fram af Kofi Annan, verði fylgt.

Mannréttindasamtök og alþjóðlegir eftirlitsmenn segja að meira en 14.000 hafi látið lífið í mótmælum og átökum í Sýrlandi frá því í mars í fyrra. Rússar hafa legið undir ámæli alþjóðasamfélagsins fyrir að hafa í tvígang hindrað að ályktanir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna yrðu samþykktar, en í þeim er framganga sýrlenskra stjórnvalda fordæmd.

Íranar hafa sömuleiðis verið dyggir stuðningsmenn stjórnar Assads Sýrlandsforseta. Stjórnmálaskýrendur halda því fram að þeir sjái þeim fyrir hergögnum og styðji við hernaðarrekstur þeirra á ýmsan annan hátt.

Í gær sagði Hague að honum virtist sem svo að Rússar hefðu vilja til að blóðbaðinu í Sýrlandi linnti, en öðru máli gegndi um Írana sem virtust frekar vilja auka á vandann með íhlutun sinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert