Yngri Madoff-bróðirinn játar sekt

Peter Madoff á yfir höfði sér 10 ára fangelsisdóm. Eldri …
Peter Madoff á yfir höfði sér 10 ára fangelsisdóm. Eldri bróðir hans, Bernard, er einn umsvifamesti fjársvikari í sögu Bandaríkjanna og afplánar nú 150 ára refsingu.

Bróðir Bernards Madoff, Peter, mun játa sig sekan um fjársvik í komandi réttarhöldum yfir fjárfestingamanninum. Hann mun þannig eiga fyrir höndum allt að 10 ára fangelsisvist.

Að sögn verjanda Peters Madoff mun hann játa að hafa falsað skattaskýrslur, framið fjársvik og að hafa enn fremur staðið fyrir ítrekuðu skjalafalsi. Peter var aðstoðarrekstrarstjóri í fjárfestingafyrirtæki bróður síns.

„Í samræmi við samkomulag sem Peter Madoff gerði við sækjendur mun hann ekki sækjast eftir vægari dómi en 10 ára fangelsisvist,“ segir í bréfi sem verjandinn sendi til dómara í héraðsdómi Manhattan. 

Peter samþykkti einnig að láta af hendi eignir að andvirði 143,1 milljarður bandaríkjadala.

Eldri bróðir Peters, Bernard, var dæmdur fyrir fjársvik, en hann ginnti góðgerðarsamtök, fjármálastofnanir, Hollywoodleikstjóra og verðbréfasala til að fjárfesta í fjárfestingafyrirtæki sínu en hann var auk þess um tíma forstjóri Nasdaq-vísitölumarkaðarins.

Á nokkrum áratugum hafði hann 65 milljarða bandaríkjadollara af þúsundum viðskiptavina og ávann sér orðsopr sem kænn fjárfestir með því að sýna fram á falskan hagnað.

Árið 2008 hrundi blekkingavefur Bernards og tók með sér ævisparnað fjölmargra fjölskyldna. Hann var handtekinn í desembermánuði þess árs og játaði sekt sína árið 2009. Hann afplánar nú 150 ára refsingu í fangelsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert