Forsetakosningarnar í hnotskurn

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ásamt Michelle Obama forsetafrú (lengst til …
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ásamt Michelle Obama forsetafrú (lengst til hægri) og dætrunum Mali og Söshu. AFP

Þrátt fyrir að úrslit bandarísku forsetakosninganna liggi fyrir þá hafa margir eflaust gaman að því að rýna í niðurstöðurnar. Glæruforritið Prezi hefur verið nýtt á skemmtilegan hátt til að sýna þær í hnotskurn.

Þar má m.a. sjá sigurræðu Barack Obama og ræðuna sem Mitt Romney hélt  þar sem hann viðurkenndi ósigur.

Farið er yfir stöðuna í nokkrum lykilríkjum, skiptingin í fulltrúa- og öldungadeildinni skoðuð sem og fjallað er um áhugaverðar tillögur sem einnig var kosið um.

Copy of Election Results Prezi on Prezi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert