Handtóku samverkamenn morðingjans

Mohamed Merah.
Mohamed Merah. AFP

Franska lögreglan handtók í dag tvo meinta samverkamenn Mohameds Merah, sem skaut sjö manns til bana í borginni Toulouse í mars. 

Maður sem lögreglan segir tilheyra samfélagi sígauna, var handtekinn suður af bænum Albi en annar maður var handtekinn í  Toulouse.

Leikur grunur á að mennirnir hafi hjálpað Merah að skipuleggja og framkvæma árásirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert