Bannað að mismuna samkynhneigðum í krafti trúfrelsis

AFP

Alþjóðanefnd lögfræðinga (ICJ), Evrópudeild Alþjóðasamtaka LGBTI-fólks (ILGA Europe) og Alþjóða-mannréttindasambandið (FIDH) fagna dómi Mannréttindadómstóls Evrópu gegn mismunun á grundvelli kynhneigðar. Rétt til iðkunar trúarbragða má takmarka, valdi hann mismunun á grundvelli kynhneigðar.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

 Í dómi sínum í máli Eweida og fleiri gegn bresku krúnunni, sem gefinn var út hinn 15. janúar, staðfesti Mannréttindadómstóll Evrópu að rétt fólks til að iðka trúarbrögð megi takmarka í því augnamiði að vernda aðra gegn mismunun á grundvelli kynhneigðar.

Alþjóðanefnd lögfræðinga, Evrópudeild Alþjóðasamtaka LGBTI-fólks og Alþjóða-mannréttindasambandið fagna þessari ákvörðun. Sérstaklega fagna þau viðurkenningu dómstólsins á því að aðgerðir gegn mismunun á grundvelli kynhneigðar séu mikilvægur og lögmætur tilgangur sem réttlæti takmarkanir á trúfrelsi.

Tvær af þeim fjórum beiðnum sem voru teknar fyrir sameiginlega í málinu vörðuðu starfsmenn sem í krafti eigin trúarafstöðu neituðu að veita samkynja pörum þjónustu. Hinar tvær vörðuðu takmarkanir vinnuveitenda á því að starfsmenn bæru sýnilega krossa við vinnu sína.

Fyrra málið, þar sem samkynja pörum var neitað um þjónustu, varðaði Lillian Ladele. Hún var starfsmaður í þjónustu sveitarfélagsins London Borough of Islington og hafði með höndum hjónabandsskráningar. Í starfi sínu hafði Ladele neitað að framkvæma athafnir til staðfestingar skráðri borgaralegri samvist samkynja para. Ástæða hennar var sú að borgaraleg samvist væri ígildi hjónabands og að samkynja sambönd gengju gegn vilja guðs. Hún var áminnt í kjölfarið og að lokum vikið úr starfi.

Dómstóllinn staðfesti að sú ákvörðun vinnuveitanda Ladele að gera enga undanþágu vegna trúarskoðana hennar væri bæði lögmæt og hófleg. Þetta byggir dómstóllinn á eigin dómaframkvæmd varðandi réttinn til að vera laus undan mismunun á grundvelli kynhneigðar, sem og nauðsyn þess að samkynja pör njóti lagalegrar viðurkenningar og verndar á samböndum sínum. Af þessum sökum var ekki talið gengið gegn rétti Ladele til að vera laus undan mismunun á grundvelli trúarskoðana.

Seinna málið varðaði Gary McFarlane, starfsmann Relate Federation, einkafyrirtækis sem býður upp á kynlífsmeðferðir og sambandsráðgjöf. Hann hafði neitað samkynja pörum um meðferð og var vikið úr starfi.

 „Staðfesting dómstólsins á því að samkynja pör séu í svipaðri stöðu og gagnkynja pör þegar kemur að viðurkenningu og vernd er mikilvægt skref fram á við, skref í þá átt að grundvallar-mannréttindareglur lýsi leið allra Evrópuríkja til framtíðar,“ er haft eftir Souhayr Belhassen, forseta Alþjóða-mannréttindasambandsins í fréttatilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert