Seldu apakjöt undir fölsku flaggi

Yfirvöld í Suður-Afríku létu rannsaka innihald tilbúinna kjötrétta og í …
Yfirvöld í Suður-Afríku létu rannsaka innihald tilbúinna kjötrétta og í þeim fannst m.a. kjöt af öpum og vatnabuffalóum. Myndin er úr myndasafni. AFP

Matvælaeftirlitið í Suður-Afríku hefur nú hafið rannsókn á því hvernig kjöt af öpum, vatnabuffalóum og geitum slæddist inn í matvöru sem var merkt sem kjöt af öðrum dýrum.

Eftir hrossakjötshneykslið í Evrópu, sem engan endi virðist ætla að taka, ákváðu yfirvöld í Suður-Afríku að láta vísindamenn við Stellenbosch háskóla kanna innihald algengra tilbúinna matvæla, sem seld eru í stórverslunum og þetta var niðurstaðan.

Að auki leiddi rannsóknin í ljós að meira en einn þriðji þeirra matvæla sem rannsakaður var, innihélt „óskilgreind innihaldefni“ og að 68% matvælanna innihéldu eitthvað allt annað kjöt en upp var gefið á umbúðum og var algengast að svínakjöt og kjúklingur kæmi í stað þess. Að auki fundust ýmsar jurtaafurðir í því sem sagt var vera hreint kjöt.

Talsmaður matvælaeftirlitsins segir í samtali við AFP-fréttastofuna að sá aðili, sem fyrst verði rannsakaður, verði verslanirnar sjálfar, en allir sem komi að framleiðslunni með einum eða öðrum hætti liggi undir grun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert