Fukushima meira en kjarnorkuslys

Þó svo Fukushima sé ekki jafn þekkt á meðal skíðafólks og Aspen eða Alparnir velkist enginn í vafa um að það er paradís skíðamannsins. En skíðakeppnir ársins snerust þó um fleira.

Íbúar Fukushima nýttu tækifærið til að sýna og sanna að borgin er meira en aðeins vettvangur kjarnorkuslyssins fyrir tveimur árum.

Meðal þess sem að er stefnt er að breyta skíðakeppnum í eins konar hátíðir sem fólk sækir á hverju ári. Það yrði þá til þess að sýna hversu vel íbúum gengur að komast yfir slysið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert