Lík Chavez til sýnis

Lík Hugo Chavez, forseta Venesúela, liggur í hálf opinni kistu í höfuðborg landsins, Karakas.

Fjölmargir stuðningsmenn forsetans hafa komið að herstöðinni þar sem kista Chavez er til að kveðja hann í hinsta sinn.

 Þriggja daga þjóðarsorg var lýst yfir í landinu við fráfall forsetans sem hafði barist við krabbamein í marga mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert