Castro hringdi í móður einnar konunnar

Ariel Castro.
Ariel Castro. HO

Ariel Castro,  maðurinn sem rændi, pyntaði og nauðgaði þremur konum í um áratug á heimili sínu í Ohio í Bandaríkjunum, sagðist hafa hringt í móður einnar konunnar til að láta hana vita að dóttir hennar væri óhult á meðan hún var fangi á heimili hans. 

Sky-fréttastofan greinir frá því að Castro hafi sagt frá þessu í yfirheyrslum FBI. „Ég held að ég hafi sagt eitthvað á þessa leið...að ég hefði dóttur hennar og hún væri óhult og að nú væri hún konan mín,“ er Castro sagður hafa sagt.

Hann segir að móðir konunnar hafi lagt á og hann hafi því ekki átt samræður við hana. Móðir konunnar lést áður en konurnar losnuðu úr prísundinni.

Í upptökunum segir Castro einnig frá tilvikum þar sem lögreglan eða aðrir hefðu átt að koma auga á hann og konurnar sem saknað var.

Castro var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir brot sín en hann samdi við saksóknara um að lýsa yfir sekt gegn því að ekki yrði farið fram á dauðarefsingu. Hann framdi sjálfvíg í klefa sínum í vikunni.

Frétt Sky-fréttastofunnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert