Ræna fórnarlömb flóðanna

Þjófagengi fara nú ránshendi um götur mexíkóska ferðamannabæjarins Acapulco en gríðarleg flóð geisa á svæðinu. Fjölmargir ferðamenn bíða þess að komast heim en allar samgöngur hafa farið úr skorðum vegna flóðanna. Aurskriður hafa fallið og því eru margir ferðamenn innlyksa og komast hvergi.

Herinn hefur í dag flutt yfir 2.000 ferðamenn frá Acapulco. 57 hafa látist í Mexíkó vegna ofsaveðurs og flóða undanfarna daga. Tveir öflugir hvirfilbyljir gengu yfir landið á innan við 24 klukkustundum. Það hefur ekki gerst síðan árið 1958.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert